STARFSFÓLKIÐ OKKAR

Eva Dögg Sveinsdóttir
Eva Dögg er menntaður kennari og hefur sinnt barnastarfi í fjöldamörg ár. Hún hefur starfað sem deildarstjóri í Leikskóla KFUM og K undanfarin 14 ár. Hún er gift, á þrjú börn og elskar að stunda útivist, ferðast, syngja og baka

Signý Guðbjartsdóttir
Signý hefur mikla reynslu í barna
og æskulýðstarfi og sótti sér
fræðslu hér og erlendis til að efla
börn í fræðslu og leik.
Skemmtilegast í dag er að leika með barnabörnunum og flytja þeim sögur og brúðuleikhús sem eru oftast er samið á staðnum og í hita leiksins.

Aron Hinriksson og Gunna Stella
Aðstoðarfólk
Hjónin Aron og Gunna Stella er bæði menntaðir grunnskólakennarar og hafa bæði starfað við kennslu í rúman áratug. Í dag starfar Gunna Stella sem fjölskyldufræðingur á Heilbrigðisstofnun suðurlands. Þau eiga 4 börn, einn hund og einn kött. Þau elska að ferðast og hafa farið víða ásamt börnunum sínum.

Guðný Sigurmundsdóttir
+Ég er Vestmannaeyingur oger gift Tryggva Hjaltasyni og saman eigum við fjögur börn. Ég starfa sem bókari hjá Lögreglustjóranum í Vestmannaeyjum. Áhugamál eru samveran með fjölskyldunni, náttúran, tónlist, prjóna, allskonar sköpun og njóta lífsins.
Jón Sverrir Friðriksson
Jón Sverrir er slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður frá Akureyri. Hann elskar heilsurækt og hefur tekið þátt í nokkrum járnköllum. Jón Sverrir er faðir þriggja stúlkna.

Björg
Eldhús
Ég hef unnið við, ásamt öðru, að elda og framleiða mat undanfarin tæp 30 ár og elska að gera góðan og fallegan mat. Ég bý í Þorlákshöfn með manninum mínum og 5 ára dóttir okkur, sem er kraftaverkagjöf frá Guði. Ég elska að gera allt með henni og að vera mamma hennar. Ég elska að skapa og þá gildir einu hvað það er, hvort sem er að skrifa, mála, gera skreytingar og kerti, smíða eða elda (það er jú ákveðin sköpun líka )

Kimberly - Leikjastjóri
Kemur alla leið frá Texas til að vera með okkur og hún semur fræðsluefni Vinabúða.
Hún er hin mesti fjörkálfur og kemur með skemmtilega leiki og þrautir fyrir okkur að takast á við.

Anna Stefanía - Kennslustjóri
Anna Stefanía er menntaður kennari og guðfræðingur sem býr á Selfossi og starfar sem kennari við grunnskólan á Stokkseyri. Hún hefur mikla reynslu af barnastarfi bæði á Íslandi og erlendis. Anna Stefanía elskar Útiveru, biblíuna og gott samfélag.

Guðni og Guðbjörg
Guðni er húsasmiður og forstöðumaður Hvítasunnukirkjunnar í Vestmannaeyjum, Guðbjörg vinnur á skrifstofu sérhæfð í útflutnings pappírum og er virk í kirkjunni í Eyjum bæði í barna- og tónlistarstarfi, Guðni og Guðbjörg hafa starfað í barna og unglingastarfi í áratugi. Eiga þrjú börn og einn ömmu og afa kút.
