top of page

Starfsfólk Vinabúða

Vinabúðir eru mannaðar úrvals starfsfólki með mikla reynslu af því að vinna með börnum og unglingum.  Hér fyrir neðan kynnum við hluta af starfsólki Vinabúða. 

att.kUVXdmCp1j9PyrdNUAQ3L5Ns3LmDRdkgg1x79dBxyH8.jpg

Guðbjörg og Guðni

Guðni er húsasmiður og forstöðumaður Hvítasunnukirkjunnar í Vestmannaeyjum, Guðbjörg vinnur á skrifstofu sérhæfð í útflutnings pappírum og er virk í kirkjunni í Eyjum bæði í barna- og tónlistarstarfi, Guðni og Guðbjörg hafa starfað í barna og unglingastarfi í áratugi. Eiga þrjú börn og einn ömmu og afa kút.

IMG_2943.jpg

Kim Bohon

Kemur alla leið frá Texas til að vera með okkur og hún semur fræðsluefni Vinabúða.

Hún er hin mesti fjörkálfur og kemur með skemmtilega leiki og þrautir fyrir okkur að takast á við.

20250323_132351_edited_edited.jpg

Anna Stefanía Erlendsdóttir

Anna Stefanía er menntaður kennari og guðfræðingur sem býr á Selfossi og starfar sem kennari við grunnskólan á Stokkseyri. Hún hefur mikla reynslu af barnastarfi bæði á Íslandi og erlendis. Anna Stefanía elskar Útiveru, biblíuna og gott samfélag.

image_123650291.JPG

Signý Guðbjartsdóttir

​

Signý hefur mikla reynslu í  barna og æskulýðstarfi og sótti sér fræðslu hér og erlendis til að eflabörn í fræðslu og leik.

Skemmtilegast í dag er að leika með barnabörnunum og flytja þeim  sögur og brúðuleikhús sem eru oftast er samið á staðnum og í hita leiksins.

​

7c747de0-c678-4d66-aa7d-a1e4fba073d4.jpeg

Eva Dögg Sveinsdóttir

Eva Dögg er menntaður kennari og hefur sinnt barnastarfi í fjöldamörg ár. Hún hefur starfað sem deildarstjóri í Leikskóla KFUM og K undanfarin 14 ár. Hún er gift, á þrjú börn og elskar að stunda útivist, ferðast, syngja og baka

811c1525-a6b9-4070-8445-6aff8420fe8e.jpeg

Guðný Sigurmundsdóttir

Guðný er Vestmannaeyingur og er gift Tryggva Hjaltasyni og saman eiga þau fjögur börn. Hún starfar sem bókari hjá Lögreglustjóranum í Vestmannaeyjum. Áhugamál eru samvera með fjölskyldunni, náttúran, tónlist, prjóna, allskonar sköpun og njóta lífsins.

9088f110-d81a-48eb-8079-f57240067b03.jpeg

Björg Ragnarsdóttir

Björg hefur unnið við, ásamt öðru, að elda og framleiða mat undanfarin tæp 30 ár og hún elskar að gera góðan og fallegan mat.  Hún býr í Þorlákshöfn með manninum sínum og 5 ára dóttir þeirra, sem er kraftaverkagjöf frá Guði. Hún elskar að gera allt með henni og að vera mamma hennar. Björg elskar að skapa og þá gildir einu hvað það er, hvort sem er að skrifa, mála, gera skreytingar og kerti, smíða eða elda (það er jú ákveðin sköpun líka). 

c9551492-bd5f-4161-85da-aa3af915a6f6.jpeg

Sigríður Unnur Lúðvíksdóttir

Sigríður Unnur Lúðvíksdóttir oftast kölluð Sigga og er gift Unnari Gísla Sigurmundssyni. Þau eiga þrjú börn á aldrinum 6,11 og 16 ára. Sigga vinnur sem textílkennari hjá Barnaskólanum í Vestmannaeyjum. Áhugamál hennar eru að ferðast með fjölskyldunni, náttúran,ljósmyndun, tónlist, textíll og sköpun.

bottom of page